Rökkurstund
Bók til upplestrar í Rökkurstund er sænska skáldsagan De kommer att drunkna i sine mödrars tårar (2017) eftir Johannes Anyuru.
De kommer att drunkna i sine mödrars tårar er
skáldsaga sem gerist í framtíðinni og
sýnir hvernig lýðræðislegt
samfélag Svíþjóðar gæti
þróast ef ekki er gætt að
lýðræðislegum gildum. Sagan hefst á
hryðjuverkaárás sem á sér stað
í bókabúð þar sem umdeildur
skopmyndateiknari heldur fyrirlestur. Árásin er tekin
upp á myndband og streymt í kjölfarið er
stelpan á bak við upptökuna lögð inn
á réttargeðdeild. Hún hefur samband
við rithöfund sem hún vill deila sögu sinni
með. Hún segist koma frá framtíðinni
þar sem samfélag Svíþjóðar er
algjörlega tvístrað. Sagan hennar fær
rithöfundinn til þess að hugleiða hvers konar
líf við lifum og hvernig samfélag við
búum í. Skáldsagan varpar ljósi
á þær afleiðingar sem geta myndast út
frá tillitsleysi og útilokun frá
samfélagi en á sama tíma fjallar hún
einnig um von, frelsi og mátt tungumálsins.
Forlag: Svenske Norstedts
Upplestrartextarnir eru birtir á heimasíðunni 19. október - 16. nóvember.